Rithöfundur · sögumaður · draumóramaður
ÉG ER ADDA
Sögur hafa fylgt mér frá barnæsku. Nú er fyrsta bókin mín komin út — og sú næsta farin að taka á sig mynd.
Kynntu þér bókina
Sigurjóns
Manneskjan á bak við sögurnar
Draumurinn beið
En hann hvarf aldrei
Ég er starfandi leikskólakennari og húsvörður í íþróttahúsi — en innra með mér hefur alltaf búið rithöfundur.
Frá því ég var lítil hefur mig dreymt um að skrifa bók og gefa hana út. Svo gerðist bara lífið, eins og það gerir. Hugmyndirnar héldu þó áfram að banka upp á og að lokum ákvað ég að hleypa einni þeirra út í heiminn.
Með Hefnd Þórdísar rættist gamall draumur. Þetta er aðeins upphafið — ég ætla að halda áfram að skapa persónur, myrkur og heima þar sem hið ómögulega fær að gerast.
ÚTGEFIN 2026
Fyrsta bókin
Hefnd
Þórdísar
Spennusaga á mörkum hins yfirnáttúrulega
Þrjár menntaskólastúlkur glíma við afleiðingar kynferðisbrota og geta ekki treyst á dómskerfið til að færa þeim réttlæti. Þær leita því leiða handan rúms og tíma og særa fram veru til að senda á gerendur sína.
En fljótlega missa þær alla stjórn á því sem þær vöktu upp — með hryllilegum afleiðingum.
Ég fékk góðar leiðbeiningar, mikla vandvirkni og myndaði gott samband við ritstjórann.