Rithöfundur · sögumaður · draumóramaður

ÉG ER ADDA

Sögur hafa fylgt mér frá barnæsku. Nú er fyrsta bókin mín komin út — og sú næsta farin að taka á sig mynd.

Kynntu þér bókina
Adda Sigurjóns brosandi utandyra
Adda
Sigurjóns

Manneskjan á bak við sögurnar

Draumurinn beið
En hann hvarf aldrei

Ég er starfandi leikskólakennari og húsvörður í íþróttahúsi — en innra með mér hefur alltaf búið rithöfundur.

Frá því ég var lítil hefur mig dreymt um að skrifa bók og gefa hana út. Svo gerðist bara lífið, eins og það gerir. Hugmyndirnar héldu þó áfram að banka upp á og að lokum ákvað ég að hleypa einni þeirra út í heiminn.

Með Hefnd Þórdísar rættist gamall draumur. Þetta er aðeins upphafið — ég ætla að halda áfram að skapa persónur, myrkur og heima þar sem hið ómögulega fær að gerast.

Adda
Bókarkápa Hefndar Þórdísar eftir Öddu Sigurjóns ÚTGEFIN 2026

Fyrsta bókin

Hefnd
Þórdísar

Spennusaga á mörkum hins yfirnáttúrulega

Þrjár menntaskólastúlkur glíma við afleiðingar kynferðisbrota og geta ekki treyst á dómskerfið til að færa þeim réttlæti. Þær leita því leiða handan rúms og tíma og særa fram veru til að senda á gerendur sína.

En fljótlega missa þær alla stjórn á því sem þær vöktu upp — með hryllilegum afleiðingum.

Fæst í flestum verslunum Eymundsson og Forlaginu
Spyrja um bókina
02

Ný saga í vinnslu

Sagan heldur áfram

Önnur bók er þegar hálfnuð. Hún er nokkurs konar framhald af Hefnd Þórdísar, en þar stíga nýjar persónur fram og tímaflakk opnar dyr að enn stærri heimi.

Ég fékk góðar leiðbeiningar, mikla vandvirkni og myndaði gott samband við ritstjórann.